Riu Papayas er gott 4 stjörnu allt innifalið hótel á ensku ströndinni sem hentar vel fyrir fjölskyldur og pör. Supermarkaður er við hliðná hótelinu og er um 1,5 km á ensku ströndina. Hótelið býður upp á skutlu sem keyrir gesti hótelsins til og frá ströndinni eftir tímatöflu hótelsins án gjalds.
Garður hótelsins er hefur góða sólbaðsaðstöðu, 1 sundlaug og 1 barnalaug. Fjölbreytt afþreying er á hótelinu líkamsrækt (16 ára aldurstakmark), krakkaklúbbur, lítill leikvöllur, lifandi tónlist og kvöldskemmtun. Aðeins er um 10 mínútna gangur í hina vinsælu Yumbo verslunarmiðstöðina frá hótelinu.
Myndasafn
Bóka
Pakkaferðir
Staðsetning
Hótellýsing
Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, asískur veitingastaður, spænskur veitingastaður, bar og sundlaugarbar.
Í boði eru tvíbýli og fjölskylduherbergi. Í öllum herbergjum eru svalir eða verönd. Sjónvarp, sími, minibar, hárþurrka, loftkæling, þráðlaust net og öryggishólf (gegn gjaldi).
Þetta er góð 4 stjörnu gisting á ensku ströndinni þar sem ýmis afþreying er á hóteli og næsta nágrenni fyrir bæði börn og fullorðna.
Frá flugvellinum í Gran Canaria er um 30 km á Riu Papayas.