Myndasafn
- Pakkaferðir
Staðsetning
Hótellýsing
Palais Mehdi er gott 5 stjörnu hótel sem hentar vel fyrir fjölskyldur og pör. Garður hótelsins er stór, hefur góða sólbaðsaðstöðu og 1 stóra sundlaug. Á hótelinu er leiksvæði fyrir börn, líkamsrækt og heilsulind sem býður upp á fjölbreyttar meðferðir gegn gjaldi.
Á hótelinu er veitingastaður, snarlbar, sundlaugarbar og bar.
Í boði eru junior svíta (2+1 gestir), executive svíta (2+1 gestir), prestige svíta (2+1 gestir) og royal svíta (2+1 gestir). Í öllum svítum eru svalir eða verönd. Sjónvarp, sími, setusvæði, minibar, hárþurrka, þráðlaust net, loftkæling og öryggishólf.
Þetta er góð 5 stjörnu gisting örstutt frá næsta golfvelli (2 km). Aðeins 8 km akstur er á Souk market og 9 km á Jemaa el-Fnaa torgið þar sem iðandi mannlíf er að finna.
Frá flugvellinum í Marrakech er um 8 km á Palais Mehdi.