Myndasafn
- Pakkaferðir
Staðsetning
Hótellýsing
Ondamar Hotel er gott 4 stjörnu íbúðahótel í Albufeira sem hentar vel fyrir fjölskyldur og pör.
Um 15 mínútna gangur er í næstu baðströnd og 4 mínútur í næsta supermarkað.
Garður hótelsins er stór og hefur góða sólbaðsaðstöðu. 1 stór sundlaug, 1 vaðlaug og 1 inni sundlaug. Lítil líkamsrækt, skvassvöllur (gegn gjaldi) og stór minigolfvöllur (gegn gjaldi) er á hótelinu.
Á hótelinu er veitingastaður, bar og snarlbar.
Í boði eru stúdíó íbúðir, íbúðir með 1 svefnherbergi og íbúðir með 2 svefnherbergjum. Í öllum íbúðum eru svalir. Sjónvarp, sími og hárþurrka. Lítið fullbúið eldhús, ísskápur, örbylgjuofn og borðbúnaður. Þráðlaust net, loftkæling og öryggishólf (gegn gjaldi).
Þetta er góð 4 stjörnu gisting staðsett í um 15 mínútna göngufjarlægð frá Praia do Forte de S. João og sögulega miðbæ Albufeira. Veitingastaðir, verslanir og barir í næsta nágrenni.
Frá flugvellinum í Faro til Ondamar Hotel er um 38 km.