Best Maritim er gott 4 stjörnu hótel í Cambrils sem hentar vel fyrir fjölskyldur og pör.
Hótelið stendur við ströndina og er um 4 mínútna gangur í næsta supermarkað. Garður hótelsins er stór og hefur góða sólbaðsaðstöðu. 1 stór sundlaug, 1 barnalaug og 1 inni sundlaug. Ýmis afþreying er á hótelinu, krakkaklúbbur, skemmtikraftar, leikjaherbergi, úti leiksvæði fyrir börn og píla. Líkamsrækt, hjólaleiga, heilsulind, snyrti og nuddmeðferðir (gegn gjaldi). Lifandi tónlist og kvöldskemmtun. Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, sundlaugarbar og bar.
Myndasafn
Bóka
Pakkaferðir
Staðsetning
Hótellýsing
Best Maritim er gott 4 stjörnu hótel í Cambrils sem hentar vel fyrir fjölskyldur og pör.
Hótelið stendur við ströndina og er um 4 mínútna gangur í næsta supermarkað. Garður hótelsins er stór og hefur góða sólbaðsaðstöðu. 1 stór sundlaug, 1 barnalaug og 1 inni sundlaug. Ýmis afþreying er á hótelinu, krakkaklúbbur, skemmtikraftar, leikjaherbergi, úti leiksvæði fyrir börn og píla. Líkamsrækt, hjólaleiga, heilsulind, snyrti og nuddmeðferðir (gegn gjaldi). Lifandi tónlist og kvöldskemmtun.
Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, sundlaugarbar og bar.
Í boði eru tvíbýli (mest 3 fullorðnir), fjórbýli (3 fullorðnir + 1 barn) og junior svíta (4 fullorðnir). Í öllum herbergjum eru svalir eða verönd. Sjónvarp, sími, minibar og hárþurrka. Þráðlaust net, loftkæling og öryggishólf.
Þetta er góð 4 stjörnu gisting sem er vel staðsett við ströndina og hefur fjölbreytta afþreyingu fyrir bæði börn og fullorðna. Veitingastaðir, barir og góðar gönguleiðir eru í næsta nágrenni.
Frá flugvellinum í Barcelona til Best Maritim er um 110 km.