Verðbil
Nætur
Star Rating
country
Playa de Las Americas Ameríska ströndin hefur löngum verið vinsælasta svæðið sem ferðamenn kjósa að dvelja á. Hér er hinn svokallaði “Laugavegur” en þar er frábært úrval góðra veitingastaða og fjöldi verslana. Siam Park og Siam Mall eru einnig staðsett á þessu svæði. Hér eru gistingar allt frá glæsilegum 5 stjörnu hótelum yfir í góðar 3 stjörnu íbúða gistingar.
Los Cristianos
Gamli bærinn í Los Cristianos einkennist af þröngum götum með líflegu mannlífi heimamanna. Hér eru góðir veitingastaðir og kaffihús. Gyllta ströndin Las Vistas tilheyrir Los Cristianos en þar er frábær aðstaða til sól og sjóbaða. Fallegt hafnarsvæðið er skemmtilegt en þaðan er hægt að fara í bátsferðir til að veiða, njóta lífsins, skoða hafsbotninn á bátum með glerbotn, siglingar á staði sem eru góðir til köfunar eða taka ferjur til nágrannaeyjunnar, La Gomera. Mikið af íbúðagistingum í boði en mikilvægt er að vita að í þessum bæ er töluvert af brekkum og hentar því ekki fólki sem á erfitt með gang.