Það er yndislegt að sitja á kaffihúsi við Römbluna með sangríu í annarri og tapas í hinni, en Ramblan er eitt þekktasta stræti Spánar. Efst á Römblunni er hinn frægi aldagamli gosbrunnur, La Rambla de Canaletes. Út frá Römblunni hlykkjast göngugötur í allar áttir sem geyma litlar búðir, bari, veitingahús og matarmarkaðinn La Boqueria sem allir sælkerar þurfa að heimsækja.
Áhugaverðir staðir
Barceloneta - vinsælasta ströndin í Barcelona. Hún er yfirleitt fjölmenn en mikið líf er um að vera á ströndinni. Þar eru einnig veitingastaðir sem og strandbarir.
Plaça de Catalunya - er miðja Barcelona. Þarna mætist gamla og nýja borgin. Passeig de Gràcia er ein glæsilegasta gata Barcelona Þar getur þú litið augum arkitektameistaraverk eftir Gaudi - Casa Batlló, La Predrera. Einnig eru þar mikið af flottustu tískuvöruverslunum heims.
La Sagrada Familia - Kirkja hinnar heilögu fjölskyldu er eitthvað sem enginn lætur framhjá sér fara á leið sinni um Barcelona. Hún er eftir Antoni Gaudí og er ein af frægustu kirkjum heims. Gaudí helgaði lífi sínu kirkjunni allt til dauðadags. Kirkjan er enn í smíðum og margir deila um hversu langt verkið er komið og sumir segja að smíðin séu aðeins hálfnuð.
Güell garður – Stór almenningsgarður á Carmel hæð í Grácia hverfi borgarinnar skreyttur af mikilli snilld af hinum óviðjafnanlega Antoni Gaudí. Staðurinn er á Heimsminjaskrá UNESCO og ekki af ástæðulausu. Bekkir, byggingar og skreytingar a lá Gaudí út um allan garð. Mosaíkmyndir hafa aldrei litið svona vel út. Garðurinn er nefndur eftir gömlum greifa sem hér vildi reisa mikla íbúðabyggð á sínum tíma. Sá hét Güell og varð ekki kápan úr því klæðinu. Í garðinum er að finna heimili Gaudís sem einnig er hægt að skoða.
Gotneski hlutinn – Elsti borgarhluti Barcelona er Barri Gotic í norðurátt frá Römblunni. Þröngar götur, gömul hús og fjöldi smærri veitingastaða og fjölbreytt mannlíf.