Borgin hefur uppá margt að bjóða, Strikið, Tivolí, Nýhöfn, Bakken að ógleymdri Hafmeyjunni og Amelienborg. Úrval verslana og veitingastaða er í borginni og er tilvalið að setjast niður á einn af fjölmörgu smurbrauðstöðum borgarinnar og gæða sér á ekta dönsku smörrebrauð, eftir smá bæjarölt í borginni. Köngsens Köben klikkar ekki.
Áhugaverðir staðir
Tívolíið - skemmtigarður fyrir alla fjölskylduna og daginn jafnt sem kvöldin.
Litla hafmeyjan - Gaman er að þefa uppi litlu hafmeyjuna og taka eins og eina selfí.
Christiania - Fríríkið Christiania var stofnuð 1972 af hippum. Þau vildi gilda sínum eigin reglum en ekki ekki fylgja reglum ríkisins. Gaman er að skoða Christianiu, öll myndartaka er bönnuð þar en í fríríkinu leynast nokkrir bragðgóðir veitingastaðir.
Nýhöfn - Það er eitthvað við að enda góðan dag á að labba um Nýhöfn og slappa af. Hellingur af veitingastöðum eða gera eins og Daninn gerir, kaupir sér sinn eigin bjór og hafa það svo notalegt við hafnarbakkann.
Strikið - Er staðurinn ef þú ætlar þér að versla.
Amalienborg höllinn - Höllin er stórglæsileg í smíðum og talin vera ein flottasta byggingin í danskri rococo arkitektasögu.
Rundetaarn - Er turn þar sem þú labbar hring eftir hring til þess að komast á toppinn. Skemmtileg hönnun síðan á 17. öld í miðri Köben.
Carlsberg - Merkið þekkja allir. Gaman er að skella sér í Valby og fara í túr um Carlsberg brugghúsið.